Væntanlegur

 

Verð frá 8.490.000 kr. með Orkusjóðsstyrk

Almennt verð frá 8.990.000 kr.

E-OUTBACK

Subaru E-OUTBACK markar nýtt upphaf hjá Subaru.
Fyrsti fullrafmagnaði Outback bíllinn,
byggður á áratuga arfleifð einnar ástsælustu gerðar Subaru.
Nafnið heldur sér sem tákn um þá miklu hefð sem Outback er,
en bætir nú við „E” sem stendur fyrir rafdrifið.
Nýr kafli í sögu þessa fjölhæfa ævintýrabíls.

MEIRI KRAFTUR. MEIRI AKSTURSÁNÆGJA

Subaru kynnir með stolti glænýjan E-OUTBACK – fullrafmagnaða útgáfu af okkar þekktasta og dáðasta bíl. Þetta er enn eitt skrefið í rafvæðingu Subaru til þessa og fylgir þróun vörumerkisins.

Með stórri 74,7 kWst rafhlöðu og 380 hestöflum sameinar nýr E-OUTBACK öflug afköst og drægni allt að 450 km, sem gerir hann tilvalinn bæði fyrir daglegan akstur og lengri ævintýri. Tveir rafmótorar – einn á hvorum öxli – skila sannkölluðu fjórhjóladrifi í Subaru-anda, sem treysta má í öllum aðstæðum.

Eins og alltaf sameinar E-OUTBACK fjórhjóladrif Subaru við háþróaða tækni fyrir öruggan og traustan akstur – í öllum veðrum, á öllum vegum og utan vega. Hann heldur einnig í þá rúmgóðu og hagnýtu hönnun sem hefur gert Outback að einum vinsælasta ævintýrabíl á Íslandi í áraraðir.

INNANRÝMI

Pláss fyrir lífið og ævintýrin

E-OUTBACK býður upp á rúmgott innanrými sem hentar bæði í daglegan akstur og fyrir lengri ferðalög. Rafdrifinn og hljóðlátur akstur tryggir aukin þægindi í hverri gerð.

Solterra 2026 - Ökumannsrými
Solterra 2026 - Innanrými
INNANRÝMI

Hannað fyrir ökumanninn

Ökumannsrýmið í E-OUTBACK fylgir hefðbundnum gildum Subaru: skýr yfirsýn, einföld notkun og öll mikilvæg stjórntæki innan seilingar. Stafræna mælaborðið og 14″ snertiskjárinn vinna saman þannig að upplýsingar liggja alltaf fyrir án þess að taka athygli frá veginum. Há sætisstaða og gott útsýni veitir þér öryggi við allar aðstæður.

INNANRÝMI

Snjall fljótandi miðstokkur

Miðstokkurinn er nýhönnuð „fljótandi” eining sem skapar betri nýtingu rýmis. Tvö þráðlaus hleðsluhólf fyrir snjallsíma, hagnýtt geymsluhólf undir og auðveldur aðgangur að öllum stjórntækjum gera ferðina þægilegri – hvort sem þú ert einn á ferð eða með alla fjölskylduna.

SOLTERRA miðborð
SOLTERRA stafrænt mælaborð
INNANRÝMI

Aukin þægindi

Sætin í E-OUTBACK eru sérhönnuð fyrir lengri ferðir. Vönduð áklæði, gott hliðarhald og rafstýrðar sætisstillingar tryggja þægindi á öllum ferðalögum. Upphituð framsæti koma að góðum notum í íslenska vetrinum og miðstöðin heldur stöðugu hitastigi um allan bílinn.

INNANRÝMI

Nýr 14″ margmiðlunarskjár

Stóri 14″ snertiskjárinn er hjarta innréttingarinnar. Hann sýnir leiðsögn, hleðslustöðu, akstursupplýsingar og afþreyingu á skýran hátt og styður Apple CarPlay og Android Auto þráðlaust. Skjárinn er staðsettur hátt í mælaborðinu sem þýðir að augun þurfa varla að færast frá veginum.

Solterra - Margmiðlunarskjár
Solterra - að framan
AFKÖST

Aukinn kraftur og lipurð

E-OUTBACK er einn kraftmesti jepplingur sem Subaru hefur framleitt. Tveir rafmótorar, einn á hvorum öxli, skila samtals 280 kW (380 hö) og þeyta bílnum úr kyrrstöðu í 100 km/klst á aðeins 4,5 sekúndum. Þetta eru afköst sem skila sér í öruggum framúrakstri, snörpum viðbrögðum og þeirri akstursgleði sem rafbílar bjóða upp á.

AFKÖST

Mikil veghæð

Með 210 mm veghæð er E-OUTBACK búinn til að takast á við hvað sem er – malarvegi, snjókomu eða ófærð. Rafhlaðan er staðsett í undirvagninum og varin með traustri stálplötu gegn hnjaski þegar ekið er í snjó eða utanvegar.

Solterra - veghæð
SOLTERRA afköst
AFKÖST

Fjórhjóladrifið

Þrátt fyrir að E-OUTBACK sé rafknúinn heldur hann fast í Symmetrical AWD-arfleifð Subaru. Tveir rafmótorar veita sjálfstæða stjórn á hverjum öxli og dreifa krafti í rauntíma eftir gripi á hverju hjóli. Niðurstaðan: betri stöðugleiki, hraðari viðbrögð og öruggara grip en hefðbundin fjórhjóladrif geta veitt.

AFKÖST

Dual X-MODE með Grip Control

X-MODE-kerfið er sérhannað fyrir torfærar aðstæður og er nú með tveimur stillingum: ein fyrir snjó og malarveg, önnur fyrir djúpan snjó og drullu. Þú ýtir á einn hnapp og bíllinn stillir afköst, grip og brekkuhemlun sjálfvirkt eftir aðstæðum. Brattar brekkur niður á við? Bíllinn heldur stöðugum hraða – þú þarft aðeins að stýra.

SOLTERRA afköst
100% RAFMAGN

Drægni sem þú getur treyst á

Stór 74,7 kWst rafhlaða veitir E-OUTBACK drægni upp á allt að 450 km á einni hleðslu samkvæmt WLTP-prófun. Það er meira en nóg fyrir daglegan akstur í höfuðborgarsvæðinu, helgarferð á Snæfellsnesi eða allan hringinn um landið með fáum hleðslustoppum. Skilvirk vatnskæling rafhlöðunnar tryggir stöðug afköst hvort sem er sumar eða vetur.

Solterra - Hleðsla
Solterra-undirvagn
100% RAFMAGN

22 kW AC-hleðsla

E-OUTBACK er búinn 22 kW AC-hleðslubúnaði – Með þriggja fasa hleðslustöð heima eða í vinnunni þýðir þetta verulega styttri hleðslutíma og meiri sveigjanleika í daglegri notkun.

100% RAFMAGN

150 kW hraðhleðsla á ferðinni

Á hraðhleðslustöð getur E-OUTBACK hlaðið með allt að 150 kW afköstum, sem þýðir að rafhlaðan fer úr 10% upp í 80% á aðeins 35 mínútum. Bíllinn forhitar rafhlöðuna sjálfvirkt þegar þú stillir hraðhleðslustöð sem áfangastað í leiðsögukerfinu – sem tryggir hámarkshleðsluafköst jafnvel í köldu veðri.

Solterra-rafhlaðan
Solterra - Hleðsla
100% RAFMAGN

E-Subaru Global Platform

E-OUTBACK byggir á nýjum E-Subaru Global Platform sem er sérhannaður fyrir rafbíla. Rafhlaðan er innbyggð í undirvagninn sem lækkar þyngdarpunkt bílsins og bætir stöðugleika í beygjum. Byggingin sjálf er sérstaklega styrkt á þeim stöðum þar sem mest mæðir á, sem skilar sér í enn meiri stífleika yfirbyggingar og betri öryggisniðurstöðum í árekstraprófum.

Solterra - akstursaðstoð
ÖRYGGI

EyeSight – augu Subaru á veginum

E-OUTBACK kemur með nýjustu kynslóð af EyeSight, akstursaðstoðarkerfi Subaru sem hefur verið margverðlaunað á undanförnum árum. Tvær háupplausnar myndavélar fylgjast stöðugt með umferð og umhverfi og veita víðtæka aðstoð — frá árekstrarvörn til akreinastýringar.

ÖRYGGI

Emergency Driving Stop

Á hraðhleðslustöð getur E-OUTBACK hlaðið með allt að 150 kW afköstum, sem þýðir að rafhlaðan fer úr 10% upp í 80% á aðeins 35 mínútum. Bíllinn forhitar rafhlöðuna sjálfvirkt þegar þú stillir hraðhleðslustöð sem áfangastað í leiðsögukerfinu – sem tryggir hámarkshleðsluafköst jafnvel í köldu veðri.

Solterra-rafhlaðan

Subaru Safety Sense akstursaðstoðarkerfið

Árekstrarvari

Kerfið greinir hraða þinn og hraða ökutækisins fyrir framan þig og bremsar sjálfkrafa ef líkur eru á árekstri.

Aðlægur hraðastillir

Heldur stöðugu bili milli þín og næsta bíls, jafnvel í þungri umferð. Bíllinn getur stöðvast að fullu og hafið akstur aftur þegar umferð fer af stað.

Akreinastýring

Heldur bílnum á miðri akrein og leiðréttir mjúklega ef þú missir athyglina. Virkar bæði á malbiki og á vegum með lélegum akreinamerkingum.

Akreinavari

Lætur þig vita ef bíll er á þeirri akrein sem þú vilt skipta yfir á og einnig ef þú ferð útfyrir þína eigin akrein.

Greining umferðarskilta

Les umferðarskilti og sýnir löglegan hámarkshraða á samsetta mælaborðinu.

Sjálfvirk stilling aðalljósa

Bíllinn sér um að stilla hæð aðalljósa og háljósa sjálfkrafa útfrá birtuskilyrðum og umferð.

Eftirlit með athygli bílstjóra

Skynjar athygli ökumanns og stingur upp á hvíld ef augnlokin eru farin að síga og lætur vita ef athyglin er ekki á veginum.

Neyðarhemlunaraðstoð

Stöðvar bílinn sjálfvirkt og á öruggan hátt ef ökumaður missir meðvitund eða stjórn.

Subaru öryggiskerfið

Blindsvæðisviðvörun

Lætur þig vita ef bíll er í blindsvæði bílstjóra þegar verið er að skipta um akrein.

Útgengisviðvörun

Þegar þú ert á leiðinni úr bílnum mun kerfið láta þig vita ef bíll nálgast að aftan.

Bílastæðahemlun

Hemlar sjálfkrafa ef hindrun greinist þegar verið er að leggja í stæði.

Bakkaðstoð

Hemlar sjálfkrafa ef umferð greinist fyrir aftan bílinn þegar verið er að bakka.

Umhverfismyndavél

360 gráðu sýn umhverfis bílinn sem hjálpar þér til dæmis að leggja í stæði.