Um helgina frumsýndi Ingvar Helgason nýjar kynslóðir af Legacy og Outback ásamt nýjum, sparneytnari og betur búnum Subaru Forester. Viðbrögðin voru hreint út sagt ótrúleg, en yfir 1500 manns komu og skoðuðu þessa glæsilegu bíla. Gríðarleg ánægja var með nýjungarnar og fólk almennt sammála um að hér væri komin ný kynslóð sigurvegara. Við þökkum kærlega fyrir þessi frábæru viðbrögð og hvetjum þá sem ekki komust um helgina að kíkja til okkar á Sævarhöfðan við tækifæri og sjá bílana með eigin augum. Að sjálfsögðu er svo alltaf heitt á könnunni!