Heimsfréttir

Nýr og gjörbreyttur Forester

Apr 11 , 2008
Sportjeppi með ný viðmið


Í næstu viku mun nýr og algjörlega endurhannaður Subaru Forester verða kynntur hjá Ingvari Helgasyni og söluaðilum um land allt.

Subaru Forester þarf vart að kynna því hann hefur fyrir löngu getið sér góðs orðs fyrir frábæra aksturseiginleika, einstaklega gott aðgengi fyrir ökumann og farþega og veghæð sem tekur öðru fram í sínum flokki. Subaru Forester hefur hingað til ekki blandað sér verulega í samkeppni við hina svokölluðu jepplinga en með tilkomu nýja bílsins mun verða breyting þar á því hér er á ferðinni sannkallaður sportjeppi og mjög spennandi kostur fyrir þá sem hafa rennt hýru auga til þessara bíla.

Nýjum Subaru Forester er ætlað að standa öðrum fremur hvað varðar gæði og frágang og því hefur mikil áhersla verið lögð á það við hönnun hans að allir þættir bílsins endurspegli þau. Með þessum markmiðum er ekki einungis átt við þætti eins og lága bilanatíðni og góða endingu heldur einnig að öll umgengni við bílinn, stjórntæki og takka sé með allra besta móti.

Nýr Subaru Forester er stærri og rúmbetri ásamt því að vera mun betur búinn en eldri gerðir og því ætti hann að henta betur fyrir breiðari hóp viðskiptavina.

Heimasíða Ingvars Helgasonar ehf.