Nýr Subaru Justy uppfyllir kröfur um bíla sem frá frítt í stæði í Reykjavík og geta þeir verið allt að 90 mínútur í senn.
Bifreiðar sem frá frítt í stæði eru sparneytnar á eldsneyti og hafa minni útblástur koltvísýrings (CO2) en aðrar bifreiðar.
Eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík er að umbuna bílstjórum sem menga minna með því að aka um á visthæfum bifreiðum í borginni. Ókeypis verður í gjaldskyld stæði fyrir visthæfar bifreiðar nema í bílastæðahúsum og í stæði sem eru lokuð eru með hliði.
Hér má sjá nánari skilgreiningu á visthæfri bifreið sem Justy fellur undir:
Bensínbílar: Eyðsla í blönduðum akstri er 5,0L/100km eða minna og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.
Sérstök bílastæðaskífa hefur verið útbúin af þessu tilefni. Skífan er sett í framrúður visthæfra bifreiða og skal vísir hennar stilltur á þann tíma sem lagt er. Stöðuverðir geta þá séð hvað bifreiðinni hefur verið lagt lengi. Skífan fæst afhent með nýjum Subaru Justy.